Viðburðir

október 2023

< >

  • Emmsjé Gauti á trúnó


    Berg

    Hljómahöll hefur endurvakið tónleikaröðina Trúnó en tónleikaröðin hafði haldið sig til hlés frá því að heimsfaraldurinn skall á. Á trúnó-tónleikum í Hljómahöll fá gestir að upplifa mikla nánd við listamennina. Tónleikarnir fara fram í Bergi sem rúmar um 100 gesti og er þó engu til sparað þegar kemur að hljóðgæðum eða lýsingu á tónleikunum. Mætti jafnvel lýsa þeim sem stórtónleikum í litlum sal. Gauti Þeyr Másson, betur þekktur undir sviðsnafninu Emmsjé Gauti, er íslenskur tónlistarmaður og rappari sem er öllum landsmönnum kunnugur. Hann gaf út sína fyrstu breiðskífu árið 2011. Síðan þá hefur hann gefið út hvern smellinn á fætur öðrum. Gauti er þekktur fyrir kraftmikla sviðsframkomu og við erum nokkuð viss um að hann mæti með mikla orku í Hljómahöllina Emmsjé Gauti hefur gefið út sjö breiðskífur:

  • Ásgeir Trausti


    Stapi

    Ásgeir Trausti kemur fram þann 6. okt. í Hljómahöll