Logo Contact us

Eyþór Ingi á trúnó

Það gleður okkur að tilkynna að Eyþór Ingi Gunnlaugsson verður á trúnó í Hljómahöll þann 6. nóvember.  Eyþór er einn af fremstu söngvurum þjóðarinnar og hefur eins og allir landsmenn vita einnig getið af sér gott orð fyrir magnaðar eftirhermur. Tónleikarnir fara fram í Bergi í Hljómahöll en þar kemur Eyþór fram með píanóið, gítarinn og röddina að vopni og býður upp á notalega kvöldstund þar sem tónlistarflutningurinn og einlægt spjall fara saman.

Dalvíkingurinn Eyþór hefur verið á sviði frá unga aldri: fimmtán ára fékk hann hlutverk í sýningunni Oliver! og ári síðar sigraði hann söngkeppni framhaldsskólanna. Þá bar Eyþór sigur úr býtum í þættinum Bandið hans Bubba árið 2008.  Eyþór stofnaði rokkhljómsveitina Eldberg, slóst í raðir Todmobile og er hann einnig söngvari og lagahöfundur í Rock Paper Sisters, sem hitaði meðal annars upp fyrir Billy Idol í Laugardalshöll. Árið 2013 keppti Eyþór fyrir Íslands hönd í Eurovision í Malmö með laginu „Ég á líf“.

Tónleikaröðin „trúnó” hefur slegið í gegn í Hljómahöll undanfarin misseri. Hugmyndin er að tjalda öllu til og bjóða upp á stórtónleika en halda þá í Bergi í Hljómahöll sem tekur aðeins um 100 gesti. Listamenn sem vanir eru að spila fyrir talsvert stærri hóp áhorfenda stíga þar á svið í nálægð við færri gesti en vanalega.

Eyþór hefur áður verið á trúnó í Hljómahöll og seldist þá upp á skömmum tíma. Tryggðu þér miða sem first á þetta einstaka tækifæri til að sjá Eyþór í návígi. Tónleikarnir fara fram 6. nóvember.  Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Takmarkaður fjöldi miða í boði.

Kaupa miða

Hvar og Hvenær?

Salur:

Berg

Dagsetning:

Klukkan hvað?:

Miðaverð:

Kr. 7990