Logo Contact us

Karlakór Keflavíkur 70 ára afmælistónleikar

Þann 1. desember næstkomandi fagnar Karlakór Keflavíkur 70 ára starfsafmæli sínu. Í tilefni af þeim merka áfanga blæs kórinn til stórtónleika í Hljómahöll laugardaginn 11. nóvember klukkan 20. Farið verður yfir sögu kórsins í máli, myndum og miklum og kröftugum söng.

Einsöngvarar koma allir úr röðum kórfélaga: Cesar Alonzo Barrera, Haraldur Helgason, Ingi Eggert Ásbjarnarson, Kristján Þorgils Guðjónsson og Valgeir Þorláksson.
Búast má við sögum af skemmtilegum uppákomum úr kórstarfinu í gegnum tíðina og ekki er ólíklegt að hinn forfrægi Keflavíkurkvartett gangi í endurnýjun lífdaga með nýjum meðlimum.

Stjórnandi Karlakórs Keflavíkur er Jóhann Smári Sævarsson, hljómsveitarstjóri og píanóleikari er Sævar Helgi Jóhannsson.

Hvar og Hvenær?

Salur:

Stapinn

Dagsetning:

Klukkan hvað?:

Miðaverð:

Kr. 4900