Viðburðir

mars 2024

< >

  • Elíza Newman á trúnó


    Berg

    Elíza mun flytja lög og segja frá fjölbreyttum ferli sínum með hljómsveit og góðum gestum. Elíza Newman kom fyrst fram í sviðsljósið með hljómsveit sinni Kolrössu Krókríðandi er þær sigruðu Músiktilraunir með látum á sínum tíma. Hún hefur starfað við tónlist alla tíð síðan og er fjölhæfur listamaður bæði sem lagahöfundur og flytjandi. Nýjasta breiðskífa Elízu, Platan Wonder Days hefur fengið frábærar viðtökur og lof gagnrýnenda og hafa lög eins og Fagradalsfjall (you´re so pretty) og Icebergs hljómað mikið í útvarpi. Lagið Ósýnileg vakti einnig mikla athygli síðasta haust fyrir sterk skilaboð og brjálað myndband sem tilnefnt var til íslensku tónlistarverðlaunanna. Með Elízu spila góðir vinir og hljómsveitafélagar, Kidda Rokk á bassa, Kalli Kolrass á trommur og Hjörtur Gunnlaugsson á gítar. Komið og verið með, þetta verður geggjað!

  • Góðgerðartónleikar til styrktar Grindvíkingum


    Stapi

    Góðgerðartónleikar til styrktar Grindvíkingum. GDRN, Valdimar, Mugison, Unnsteinn Manuel, Klara Elías og fleiri.

  • Magnús og Jóhann - Aftur heim


    Stapi

    Magnús og Jóhann snúa aftur heim í Stapa með stórtónleika í Hljómahöll þann 22. mars. Þeir hafa gefið út fjölda laga í gegnum tíðina sem allir landsmenn þekkja. Má þar á meðal nefna lögin Álfar, Söknuður, Ást, Blue Jean Queen, Jörðin sem ég ann, Í Reykjavíkurborg, Þú átt mig ein, Yakety Yak, Mary Jane, Seinna meir, Ísland er land þitt og þannig mætti áfram telja. Tónleikar hefjast kl. 20:00. Húsið opnar klukkan 19:00