Páll Óskar „Gordjöss“ með Jóni Ólafs
Hinn óviðjafnanlegi Páll Óskar hefur verið reglulegur gestur Jóns Ólafssonar í Salnum í Kópavogi fyrir fullu húsi, trekk í trekk. Þeir félagar fara yfir líf og störf Palla (sem verður 45 ára daginn eftir þessa tónleika) í tali og tónum. Hlátrasköll áhorfenda hafa stundum heyrst langt út fyrir tónleikasalinn því samtal þeirra jaðrar við uppistand í bland við ómótstæðilega tónlistina. Þetta er einstakt tækifæri fyrir tónleikagesti Hljómahallar að fá að kynnast einlægum listamanninum í návígi. Stórskemmtileg kvöldstund sem gerir lífið léttara.
Hvar og Hvenær?
Salur:
Stapi
Dagsetning:
Klukkan hvað?:
Miðaverð:
Kr. 3900