Hljómahöll og Reykjanesbær auglýsir á hverju ári eftir umsóknum um styrki til viðburðarhalds í Hljómahöll fyrir upprennandi listamenn. Umsóknarferlinu og úthlutun árið 2026 er lokið og verður auglýst á ný á vormánuðum 2027.
MARKHÓPUR
Styrkirnir eru ætlaðir upprennandi listafólki og hópum. Aðrir styrkhæfir viðburðir eru góðgerðarviðburðir og viðburðir sem ætlaðir eru börnum eða eldri borgurum þar sem er enginn aðgangseyrir.
MARKMIÐ VERKEFNISINS
Aðgengi
Auka aðgengi hópa að viðburðahaldi í sviðslistum í sölum Hljómahallar sem myndu annars ekki eiga kost á viðburðahaldi í húsinu.
Fjölbreyttni
Styðja við að fjölbreyttur hópur listafólks fái tækifæri til að koma fram í Hljómahöll.
Menningarlíf
Auðga menningarlíf í Reykjanesbæ
Auka nýtingu
Auka nýtingu á salarkynnum og aðstöðu í Hljómahöll.
FYLGSTU MEÐ
Umsóknarferlinu og úthlutun árið 2026 er lokið og verður auglýst á ný á vormánuðum 2027.