VEISLUR
Hljómahöll hentar undir veislur af öllum stærðum og gerðum, hvort sem það eru stórar eða litlar árshátíðir, brúðkaupsveislur, erfidrykkjur eða annað. Stapi er stærsti salur Hljómahallar og getur hann tekið allt að 400 manns í borðhald á langborðum. Vinsælt þykir fyrir fjölmenna viðburði að nýta Rokksafn Íslands fyrir fordrykk gestanna áður en haldið er yfir í borðhald í Stapa.
Í Hljómahöll er veisluþjónusta sem leggur mikið upp úr faglegri og persónulegri þjónustu.
STAPI
Hið sögufræga félagsheimili Stapi er stærsti salurinn í Hljómahöll og býður upp á fjölbreytta möguleika til viðburðahalds.
Ef salurinn er notaður fyrir borðhald, þá getur hann tekið allt að 400 manns, og er þá einnig framlengdur yfir í Merkines-salinn til að auka plássið.
Stapi er því tilvalinn fyrir stórar samkomur, hvort sem það eru fundir, ráðstefnur, tónleikar, árshátíðir eða veislur, þar sem boðið er upp á sveigjanlega möguleika og góðan aðbúnað fyrir gesti.
Tæknilegar upplýsingar
Hljóðkerfi: L'Acoustics KIVA
Myndvarpi: NEC PX803UL 8000lm
Sýningartjald: 8m (breidd) x 6m (hæð)
Stærð sviðs: 12m (breidd) x 8m (dýpt)
Lofthæð í sal: 6m
Lofthæð á sviði: 5m
Hámarksfjöldi gesta
Hringborð (hámark 180 manns)
Langborð (hámark 400 manns)
Myndasafn úr Stapa
Veislur í Hljómahöll
NOKKRAR UMSAGNIR
„Þökkum frábæra árshátíð! Aðstaða og þjónusta var fyrsta flokks og stóðst allar okkar væntingar. Svakalega flott að byrja árshátíð í Rokksafninu og verður þetta ofarlega í huga sem ein besta árshátíð undanfarinna ára!“
- Samstarf, Starfsmannafélag Samkaupa
„Þetta var svo æðislegt í alla staði. Ég er svo þakklát fyrir allt sem gert var í veislunni. Tæknimennirnir eru æði. Þvílíkir snillingar og svo góð nærvera. Okkur leið eins og kóngafólki og við þökkum ykkur svo innilega fyrir allt sem þið gerðuð fyrir okkur! Við erum enn í sæluvímu hvað allt gekk vel og allt svo fallegt. Enn og aftur, takk fyrir allt! Þið eruð snillingar!“
- Brúðhjón sem héldu brúðkaupveislu sína í Stapa
„Ótrúlega ánægður með alla umgjörð og samskipti við Hans veitingastjóra og Viktor tæknistjóra. Virkilega faglega unnið, maturinn var frábær og vel hægt að mæla með Hljómahöll og starfsfólki þess í viðburðum sem þessum“
- Eyjólfur, mannauðsstjóri Þjóðleikhússins eftir árshátíð Þjóðleikhússins
Vantar þig sal
fyrir þinn viðburð?

Vantar þig sal
fyrir þinn viðburð?








