FUNDIR OG RÁÐSTEFNUR
Í Hljómahöll er fullkomin aðstaða til fundar- og ráðstefnuhalds. Í húsinu er fullkomið mynd- og hljóðkerfi en hægt er að senda bæði hljóð og mynd yfir í alla sali hússins hvaðan sem er. Þá er allur nauðsynlegur búnaður fyrir ráðstefnu- og fundarhald til staðar svo sem skjávarpar, tjöld, tölvur, hljóðnemar (þráðlausir eða víraðir), þráðlausir bendlar o.fl.
Salir sem henta undir ráðstefnu- og fundarhald eru Berg og Stapi. Þá nýtast skólastofur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar einnig ef um stórt ráðstefnuhald er að ræða.
Í Hljómahöll er einnig veisluþjónusta sem leggur mikið upp úr faglegri og persónulegri þjónustu.
STAPI
Hið sögufræga félagsheimili Stapi er stærsti salurinn í Hljómahöll og býður upp á fjölbreytta möguleika til viðburðahalds.
Salurinn getur tekið allt að 800 gesti á tónleikum, þar af 700 standandi á gólfi og 100 í sætum á svölum. Þegar haldnir eru dansleikir eykst gestafjöldinn upp í 897 manns, með því að framlengja salinn og opna inn í Merkines-salinn. Stapi býður einnig upp á 445 sæti í leikhúsuppröðun, þar af eru rúmlega 100 sæti staðsett á svölum. Ef salurinn er notaður fyrir borðhald, þá getur hann tekið allt að 450 manns, og er þá einnig framlengdur yfir í Merkines-salinn til að auka plássið.
Stapi er því tilvalinn fyrir stórar samkomur, hvort sem það eru fundir, ráðstefnur, tónleikar, árshátíðir eða veislur, þar sem boðið er upp á sveigjanlega möguleika og góðan aðbúnað fyrir gesti.
Tæknilegar upplýsingar
Hljóðkerfi: L'Acoustics KIVA
Myndvarpi: NEC PX803UL 8000lm
Sýningartjald: 8m (breidd) x 6m (hæð)
Stærð sviðs: 12m (breidd) x 8m (dýpt)
Lofthæð í sal: 6m
Lofthæð á sviði: 5m
Hámarksfjöldi gesta
Hámarks gestafjöldi á tónleikum: 800 (700 standandi og 100 sæti á svölum)
Hámarksgestafjöldi á dansleikjum: 897
Hámarksgestafjöldi í leikhúsuppröðun: 457 (357 niðri og 100 í sætum á svölum)
Hámarksgestafjöldi í borðhaldi: 450
Myndasafn úr Stapa
BERG
Salurinn Berg er nefndur í höfuðið á Hólmsbergi í Keflavík sem í daglegu tali er nefnt „Bergið“.
Berg er kjörinn fyrir tónleika, fundi og ráðstefnur. Berg býr yfir fullkomnu og öflugu hljóðkerfi, skjávarpa og sýningartjaldi. Í salnum eru 127 sæti. Stólunum er raðað á bekki í sjö stighækkandi raðir. Stólarnir eru einstaklega þægilegir en þeir heita Magni og eru hannaðir af Valdimar Harðarsyni arkitekti.
Tæknilegar upplýsingar
Stærð salar: 9,3m x 16m
Lofthæð: 6m
Stærð sviðs: 9,3m (breidd) x 5m (dýpt)
Skjávarpi: NEC PA703UL 7000 Lm
Sýningartjald: 5 x 5 metrar
Hljóðkerfi: JBL VRX900 Series
Hámarksfjöldi gesta
Sætafjöldi: 127 sæti
Myndasafn úr Bergi
Fundir og ráðstefnur í Hljómahöll
NOKKRAR UMSAGNIR
,,Ég hef talað og unnið með tæknifólki um allan heim í mörg ár og ég hef aldrei fengið jafn fumlausa og flotta þjónustu og hjá tæknimönnum Hljómahallar."
- Magnús Scheving, Latibær
,,Við komum saman 85 manna hópur í Hljómahöll þar sem við áttum vinnudag. Viljum við öll þakka fyrir frábæran og eftirminnilegan dag. Hljómahöll er notalegur og flottur staður og vel til þess fallinn að taka á móti stórum hópum og staðurinn kom skemmtilega á óvart og er vægt til orða tekið. Yndislegt var að koma í morgunmatinn og borða hádegismat eftir fyrirlestur og fá svo veislumat um kvöldið eftir göngu um bæinn. Maturinn fyrsta flokks í notalegu umhverfi. Hlakka til að koma aftur."
- Ósk Laufdal, Actavis
,,Ég vil þakka kærlega fyrir frábæra aðstöðu og einstaklega góða og lipra þjónustu, bæði á sviði tæknimála og veitinga, á STS þinginu. Gott og ljúft viðmót annars starfsfólks Hljómahallar spillti svo ekki fyrir. Ég veit að þinggestir fóru héðan yfir sig ánægðir með allan aðbúnað, sem var algerlega „professional“, og sömuleiðis með allt það sem gladdi augað í þessu fallega húsi."
- Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Vantar þig sal
fyrir þinn viðburð?

Vantar þig sal
fyrir þinn viðburð?

















