TÓNLEIKAR

Hljómahöll hentar einstaklega vel undir tónleikahald af öllum stærðum og gerðum. Hljómahöll býr yfir hljóðkerfum sem standast ströngustu kröfur tónlistarmanna. 


STAPI

Hið sögufræga félagsheimili Stapi er stærsti salurinn í Hljómahöll og býður upp á fjölbreytta möguleika til viðburðahalds.


Salurinn getur tekið allt að 800 gesti á tónleikum, þar af 700 standandi á gólfi og 100 í sætum á svölum. Þegar haldnir eru dansleikir eykst gestafjöldinn upp í 897 manns, með því að framlengja salinn og opna inn í Merkines-salinn. Stapi býður einnig upp á 445 sæti í leikhúsuppröðun, þar af eru rúmlega 100 sæti staðsett á svölum. Ef salurinn er notaður fyrir borðhald, þá getur hann tekið allt að 450 manns, og er þá einnig framlengdur yfir í Merkines-salinn til að auka plássið.


Stapi er því tilvalinn fyrir stórar samkomur, hvort sem það eru fundir, ráðstefnur, tónleikar, árshátíðir eða veislur, þar sem boðið er upp á sveigjanlega möguleika og góðan aðbúnað fyrir gesti.

  • Tæknilegar upplýsingar

    Hljóðkerfi: L'Acoustics KIVA



    Myndvarpi: NEC PX803UL 8000lm



    Sýningartjald: 8m (breidd) x 6m (hæð)



    Stærð sviðs: 12m (breidd) x 8m (dýpt)



    Lofthæð í sal: 6m



    Lofthæð á sviði: 5m

  • Hámarksfjöldi gesta

    Hámarks gestafjöldi á tónleikum: 800 (700 standandi og 100 sæti á svölum)



    Hámarksgestafjöldi á dansleikjum: 897



    Hámarksgestafjöldi í leikhúsuppröðun: 457 (357 niðri og 100 í sætum á svölum)



    Hámarksgestafjöldi í borðhaldi: 450

  • Fyrri viðburðir í Stapa

    Óteljandi viðburðir hafa verið haldnir í Stapa frá því að hann var reistur en á meðal þeirra sem hafa komið fram í Hljómahöll frá opnun hússins 5. apríl 2014 eru Hljómar, Páll Óskar, Magnús Kjartansson, Magnús og Jóhann, Ólafur Arnalds, Björgvin Halldórsson, Mammút, Elíza Newman, Snorri Helgason, Ylja, Kaleo, KK, Ragnheiður Gröndal, Júníus Meyvant, Pétur Ben, Hugleikur Dagsson, Mið-Ísland, Sálin, Skítamórall, Jón Jónsson, Hallur Ingólfsson, Fuck Buttons, Hebronix, Eaux, Karlakór Keflavíkur, Sönghópur Suðurnesja, Nýdönsk, Laddi, Gunnar Þórðarson, Skálmöld, Trúbrot, Eyþór Ingi, Hjálmar, Moses Hightower, Maus, Baggalútur, Jóhanna Guðrún, GusGus, Matthew Santos, Valdimar, Dúndurfréttir, Fríða Dís, Pétur Ben, Már Gunnarsson, Bjartmar & Bergrisarnir, JóiPé X Króli, Bubbi Morthens, Kælan mikla, Arnar Dór, Herra Hnetusmjör, Jana María, Prins Póló, SSSól, Amabadama, Úlfur Úlfur, Emmsjé Gauti, Louis Cole, Midnight Librarian, Hatari, Deep Jimi & the Zep Creams, Vox Felix, Ásgeir Trausti, Auður, Marína Ósk, Ari Eldjárn, Cate Le Bon, Vök, Tindersticks, Unnsteinn Manuel, GDRN, Klara Elías, Nostalgía, Demo, Rolf Hausbentner Band, Bríet, Jónas Sig, Aron Can, Thurston Moore Group, Aldous Harding, Karate og margir fleiri.

Myndasafn úr Stapa

BERG

Salurinn Berg er nefndur í höfuðið á Hólmsbergi í Keflavík sem í daglegu tali er nefnt „Bergið“.


Berg er kjörinn fyrir tónleika, fundi og ráðstefnur. Berg býr yfir fullkomnu og öflugu hljóðkerfi, skjávarpa og sýningartjaldi. Í salnum eru 127 sæti. Stólunum er raðað á bekki í sjö stighækkandi raðir. Stólarnir eru einstaklega þægilegir en þeir heita Magni og eru hannaðir af Valdimar Harðarsyni arkitekti.



  • Tæknilegar upplýsingar

    Stærð salar: 9,3m x 16m


    Lofthæð: 6m


    Stærð sviðs: 9,3m (breidd) x 5m (dýpt)


    Skjávarpi: NEC PA703UL 7000 Lm


    Sýningartjald: 5 x 5 metrar


    Hljóðkerfi: JBL VRX900 Series

  • Hámarksfjöldi gesta

    Sætafjöldi: 127 sæti

Myndasafn úr Bergi

Vantar þig sal

fyrir þinn viðburð?


Mynd tekin fyrir utan Hljómahöll og Rokksafn Íslands í Reykjanesbæ með merki Icelandic Museum of Rock ’n’ Roll í forgrunni.

Vantar þig sal

fyrir þinn viðburð?


Mynd tekin fyrir utan Hljómahöll og Rokksafn Íslands í Reykjanesbæ með merki Icelandic Museum of Rock ’n’ Roll í forgrunni.