

Feita hjartað er glæný gamansýning frá einum ástsælasta ástmegi þjóðarinnar og sú fyrsta síðan sýningin Engar takmarkanir gekk fyrir fullu húsi um allt land árið 2023.
Sýningin hefur jafnframt verið sýnd fyrir fullu húsi í vetur. Maðurinn sem einnig hefur verið nefndur Gene Hackman sinnar kynslóðar, maðurinn sem er bæði barnabarn og nafni nóbelsskáldsins, sjónvarpsmaðurinn, hinn íslenski Colonel Sanders, rapparinn, leikarinn, skáldið, höfundurinn og nautnaseggurinn hefur fyrir löngu sigrað þjóðina og gerir fátt betur en að koma fólki til að hlæja.
Í sýningunni Feita hjartað kafar Dóri ofan í kviku tilverunnar og skoðar sjálfan sig að innan. Þar er margt að finna sem gaman er að segja frá og enn meira gaman að hlusta á.
Sýningin er stranglega bönnuð innan 16 ára.
Upphitun verður í höndum hinnar óviðjafnanlegu Margrétar Björnsdóttur.
Hópabókanir: Hópar sem telja 10 eða fleiri fá afslátt á þessa sýningu. Vinsamlegast sendið tölvupóst á [email protected] fyrir hópabókanir.
Miðaverð frá
Staðsetning
Dagsetning
Tími
SKRÁÐU ÞIG Á LISTANN
Þau sem skrá sig á póstlista Hljómahallar fá fréttir af nýjum viðburðum, tilboðum og aðgang að sérstökum forsölum fyrir viðburði.
SKRÁÐU ÞIG
Á LISTANN
Þau sem skrá sig á póstlista Hljómahallar frá fréttir af nýjum viðburðum, tilboðum og aðgang að sérstökum forsölum fyrir viðburði.

