

Það er okkur sannur heiður að segja frá því að bandaríski tónlistarmaðurinn Louis Cole kemur fram á tónleikum í Hljómahöll þann 13. ágúst næstkomandi ásamt stórsveit - daginn eftir almyrkvann 2026 sem verður sýnilegur á Reykjanesskaganum. Louis kom síðast til landsins árið 2021 og vakti þá athygli fyrir einstaklega skemmtilega tónleika.
Louis Cole kemur frá Los Angeles og er mikið hæfileikabúnt. Hann er álitinn einn af framúrstefnulegustu fönk trommurum heims í dag. Markmið hans með tónlist sinni er að tjá djúpar tilfinningar sínar en óhætt er að segja að tónlist hans sé mjög tilfinningarík. Louis Cole hefur gert ótal myndbönd við tónlist sína sem hafa orðið gríðarlega vinsæl á Youtube.
Frá síðustu heimsókn sinni til Íslands hefur Louis Cole hlotið tvær Grammy-tilnefningar. Árið 2023 var hann tilnefndur í flokki Best Arrangement, Instruments and Vocals fyrir lagið sitt Let It Happen og árið 2024 hlaut plata hans Quality Over Opinion tilnefningu í flokki Best Alternative Jazz Album á Grammy-verðlaunum.
Genevieve Artadi kemur fram með Louis Cole.
Genevieve Artadi er frá Los Angeles og hefur vakið athygli fyrir frumlegan lagasmíðastíl, leikandi útsetningar og einstaka rödd. Hún hefur sent frá sér fjórar sólóplötur og unnið með stórsveitinni Norrbotten Big Band, auk þess að gefa út tónlist með hljómsveitum á borð við KNOWER og Expensive Magnets.
Tónlist hennar hefur heyrst víða, meðal annars í þáttunum The Bear, Lego Ninjago og tölvuleikjum eins og Beat Saber og Grand Theft Auto V. Með blöndu af jazz, tilraunakenndum poppáhrifum og skapandi nálgun lofar Genevieve Artadi einstökum tónleikum sem tónlistaráhugafólk vill ekki missa af.
Miðaverð frá
Staðsetning
Dagsetning
Tími
SKRÁÐU ÞIG Á LISTANN
Þau sem skrá sig á póstlista Hljómahallar fá fréttir af nýjum viðburðum, tilboðum og aðgang að sérstökum forsölum fyrir viðburði.
SKRÁÐU ÞIG
Á LISTANN
Þau sem skrá sig á póstlista Hljómahallar frá fréttir af nýjum viðburðum, tilboðum og aðgang að sérstökum forsölum fyrir viðburði.

